Tenglar

1. maí 2012 |

Öllum boðið í súpu í Bjarkalundi

Í dag er opnað í Hótel Bjarkalundi fyrir sumarið. Jafnframt hittist þannig á, að í dag er fyrsti þriðjudagur mánaðarins og þess vegna er mánaðarlegur súpufundur í Reykhólahreppi haldinn í Bjarkalundi í kvöld. Súpufundirnir eru núna á öðru starfsári sínu, en þeir eru til kynningar á fyrirtækjum og öðru sem fram fer í sveitarfélaginu. Bjarkalundur býður öllum í gúllassúpu og jafnframt verður fjallað um 65 ára afmæli þessa elsta sumarhótels landsins, sem fagnað verður í sumar.

 

Salurinn í Bjarkalundi verður opnaður súpufundargestum kl. 18.30.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31