Tenglar

11. október 2011 |

Ómar talsmaður LBL - enginn þingmaður mætti

Aðal- og varastjórn LBL. Guðjón og Þórarinn eru yst til vinstri en Ómar næstyst til hægri.
Aðal- og varastjórn LBL. Guðjón og Þórarinn eru yst til vinstri en Ómar næstyst til hægri.

Ómar Ragnarsson var kjörinn talsmaður samtakanna Landsbyggðin lifi (LBL) á aðalfundi þeirra á laugardag. Hér er um að ræða nýtt embætti í aðalstjórn LBL. Nýr formaður er Eðvald Jóhannsson á Egilsstöðum og tekur hann við af Guðjóni D. Gunnarssyni á Reykhólum, sem á sæti í varastjórn næsta árið. Stjórnarkjör fer fram á hverju ári og hefur Guðjón ýmist verið í aðalstjórn eða varastjórn LBL síðustu sjö-átta árin. Þórarinn Ólafsson í Stekkjarlundi í Reykhólasveit var kjörinn meðstjórnandi.

 

Á fundinum sem haldinn var í Ketilási í Fljótum var Ómari Ragnarssyni fært málverk að gjöf fyrir störf hans í þágu landsbyggðarinar á liðnum áratugum.

 

Að venjulegum aðalfundarstörfum loknum var almenn umræða um opinbera þjónustu á landsbyggðinni. Vonast hafði verið til þess að einhverjir þingmenn myndu koma til þeirrar umræðu en svo var ekki. Af því tilefni var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Fundurinn harmar áhugaleysi alþingismanna á stöðu landsbyggðarinnar. Enginn þeirra sá ástæðu til að mæta á fundinn sem fjallaði um opinbera þjónustu á landsbyggðinni. Umræðan var boðuð með góðum fyrirvara til alþingismanna með aðalfundarboði samtakanna.“

 

Landsbyggðin lifi

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31