Tenglar

11. október 2021 | Sveinn Ragnarsson

Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða vegna verkefna ársins 2022. Veittir verða stofn- og rekstrarstyrkir, verkefnisstyrkir til menningarmála og verkefnisstyrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Til úthlutunar eru um 50 milljónir króna, en endanleg upphæð hefur enn ekki verið tilkynnt.

 

Í úthlutunarreglum segir m.a. um áherslur ársins 2022

 

Að jafnaði er litið til verkefna sem efla nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu, stuðla að vöruþróun og hönnun, verkefni sem mynda atvinnutækifæri og auka fagmennsku á sviði lista og menningar, verkefni sem styðja við uppbyggingu og eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu og síðast en ekki síst verkefni sem eru gjaldeyrisskapandi.  

 

Við úthlutun til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna verður sérstaklega litið til:
a) Verkefna sem auka hagnýtingu á stafrænni tækni. 

b) Verkefna sem stuðla að vöruþróun, nýsköpun eða innleiðingu hönnunar í starfandi fyrirtækjum.
c) Verkefni sem efla vöru- og tækniþróun með áherslu á virði afurða.
d) Verkefni sem hyggjast sækja um í alþjóðlega samkeppnissjóði.

Við úthlutun til menningarverkefna verður sérstaklega litið til:
a) Verkefna sem efla samstarf á milli svæða á Vestfjörðum.
b) Verkefna sem skapa störf innan skapandi greina.
c) Verkefna sem stuðlar að vexti fjölmenningarsamfélagsins á Vestfjörðum.
d) Verkefna sem stuðla að aukinni þátttöku almennings í menningar- og félagsstarfi.

 

Skilyrði er að verkefnin komi til framkvæmda á Vestfjörðum.

 

Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 4. nóvember 2021.

 

Á þessari síðu má finna úthlutunarreglur, upplýsingar um fyrri úthlutanir og annan fróðleik um Uppbyggingarsjóð Vestfjarða.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31