11. nóvember 2017 | Sveinn Ragnarsson
Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða
Munið að missa ekki af tækifæri til að fá styrk til að koma draumum í verk. Opið er fyrir umsóknir til 21. nóv.
Sjóðurinn styrkir rekstur helstu safna, menningarlegar uppákomur og hugmyndir að nýjum atvinnutækifærum.
Það er farið inn á umsóknarrammann með Íslykli eða auðkennisnúmeri í síma.
http://vestfirdir.is/uppbyggingarsjodur/
Námskeið verða t.d. í Hnyðju á Hólmavík 15. nóv. miðvikudag kl 16 -18, og bókasafninu á Reykhólum föstudaginn 17. nóv. kl. 17 – 19.