Tenglar

21. október 2015 |

Opið hús í Konnakoti

Konnakot er að Hverfisgötu 105, 2. hæð. Mynd: Google Maps.
Konnakot er að Hverfisgötu 105, 2. hæð. Mynd: Google Maps.

Núna á föstudagskvöldið, síðasta dag sumars, verður opið hús í Konnakoti, félagsheimili Barðstrendingafélagsins. Milli kl. 20 og 22 verður starfsfólk Spilavina á staðnum og kynnir ýmis borðspil og leyfir fólki að prófa. Það er engin skylda að spila, það má líka mæta, fylgjast með og spjalla. Velkomið að koma með öl eða aðra drykki með sér, en eins og alltaf verður heitt á könnunni.

 

Húsið verður opnað kl. 19.30 og aðgangseyrir er þúsundkall.

 

Sjáumst með góða skapið í Konnakoti, Hverfisgötu 105 í Reykjavík, annarri hæð, og kveðjum sumarið saman í góðum félagsskap, segja forsvarsmenn Barðstrendingafélagsins.

 

Leiga á Konnakoti

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31