1. júní 2011 |
Opið hús og léttar veitingar á nýju sýningunni
Íbúum Reykhólahrepps er boðið á „opið hús“ á nýju sýningunni í Mjólkurbúinu á Reykhólum á föstudagskvöld. Húsið verður opnað klukkan átta og mannskapurinn sem stendur að verkefninu býður þeim sem koma upp á léttar veitingar, smárétti og kaffi. Jafnframt er stórfróðlegt að skoða hvernig húsakynnin hafa tekið algerum stakkaskiptum frá því sem var og sjá allt sem þar hefur verið komið fyrir. Bátasafnsmaðurinn gamli Hjalti Hafþórsson, sem undanfarið hefur lagt nótt við dag til að hægt yrði að opna sýninguna núna um mánaðamótin, vonast til að sem allra flestir komi og eigi góða og skemmtilega stund saman.
Sjá nánar:
Verkalok í Mjólkurbúinu á Reykhólum
Harpa Eiríksdóttir, fimmtudagur 02 jn kl: 14:05
Við hvetjum alla til að kíkja til okkar, það er frítt inn í dag og á morgun á sýningarnar.