Opið í Ólafsdal
Sumaropnun í Ólafsdal í Gilsfirði hófst um síðustu helgi. Opið alla daga kl. 12 - 17 fram til 18. ágúst.
Tólfta Ólafsdalshátíðin verður haldin laugardaginn 17. ágúst (fjölskyldduhátíð).
Nú hefur Minjavernd endurreist Mjólkurhúsið í Ólafsdal (Vatnshúsið) og næst er það fjósið (verður lokað fyrir næsta vetur). Þrjár göngubrýr eru komnar yfir árnar til að auðvelda göngufólki för um dalinn og góðar gönguleiðir í nágrenninu.
Búið er að stika gönguleiðina upp í Skál. Spennandi uppgröftur á víkingaaldarskálanum (aðeins 1 km göngufjarlægð frá skólahúsinu) hélt áfram í maí-júní og fundust þar ýmsir góðir gripir.
Lífrænt vottaða Ólafsdalsgrænmetið 2019 vex vel. Kaffi, djús, vöfflur og Erpsstaðaís hjá Elfu og Halla! Velkomin í dalinn fagra og söguríka. Sjá meira á www.olafsdalur.is
Myndir af fb. síðu Rögnvaldar Guðmundssonar.