16. júní 2014 | vefstjori@reykholar.is
Opið lengur fram á kvöld í Grettislaug
Grettislaug á Reykhólum, hin frábæra 25 metra sundlaug með heitu pottunum, verður opin kl. 15-22 alla daga í sumar eða til og með 23. ágúst. Fyrir nokkru var auglýst að hún yrði opin kl. 13-20 en því hefur verið breytt frá og með deginum í dag. Í haust mun tíminn svo styttast á ný og dögum í vikunni að líkindum fækka eitthvað eins og venjulega.