2. ágúst 2012 |
Opið til kl. 22 alla verslunarmannahelgina
Í sumar hefur verslunin Hólakaup á Reykhólum verið opin alla daga fram til klukkan tíu á kvöldin. Hér skal því komið á framfæri, að ekkert breyttist í því efni núna um mánaðamótin. Búðin verður opin um verslunarmannahelgina og líka á mánudag kl. 10-22 eins og verið hefur.
Daglegur afgreiðslutími styttist hins vegar mánudaginn 13. ágúst. Meira um það hér þegar nær dregur.