Tenglar

14. janúar 2010 |

Opinn fjarfundur um eflingu sveitarstjórnarstigsins

Ráðherra og formaður Sambands ísl. sveitarfélaga skrifa undir viljayfirlýsingu um eflingu sveitarfélaga.
Ráðherra og formaður Sambands ísl. sveitarfélaga skrifa undir viljayfirlýsingu um eflingu sveitarfélaga.
Opinn kynningarfundur um eflingu sveitarstjórnarstigsins verður haldinn á morgun, föstudaginn 15. janúar, á Ísafirði, Patreksfirði og Reykhólum með samtengingu í gegnum fjarfundabúnað. Hann hefst kl. 16.30 og á Reykhólum verður hann í skólanum. Frummælendur eru Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Anna Guðrún Edvardsdóttir, formaður stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga.

 

Fundurinn er haldinn í kjölfar þess að í haust undirrituðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Sambands ísl. sveitarfélaga yfirlýsingu um að skipa samstarfsnefnd til að meta sameiningarkosti sveitarfélaga í hverjum landshluta. Nefndin skal kynna sér stöðu mála í einstökum landshlutum og viðhorf bæði sveitarstjórnarmanna og almennings til sameiningar.

 

Að því loknu skal hún leggja fram drög um sameiningarkosti í hverjum landshluta og verði þau lögð fyrir landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2010 til umræðu og álits. Að því loknu mun ráðherra leggja fyrir Alþingi áætlun um sameiningar sveitarfélaga til ársins 2014, sem byggist á umræðum og áliti landsþingsins.

 

Í byrjun september samþykkti 54. Fjórðungsþing Vestfirðinga að fela stjórn FV að hefja undirbúningsvinnu og athuganir á kostum og göllum sameiningar sveitarfélaga á Vestfjörðum. Verkefnin falla því mjög vel hvort að öðru og munu aðilar þessa máls vinna sameiginlega að því markmiði að efla sveitarstjórnarstigið.

 

Sameiningarnefnd ráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga mun leggja áherslu á að sameining sveitarfélaga geti skapað betri forsendur fyrir frekari verkefnaflutningi frá ríki til sveitarfélaga, fyrir frekari breytingum á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga og gert sveitarfélögum betur kleift að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra, svo sem varðandi íbúaþjónustu, stjórnsýslu, fjármál og ábyrgð.

 

Nefndin mun líka meta fyrir hvert landsvæði hvaða aðrar aðgerðir gætu falið í sér frekari styrkingu sveitarfélaga í kjölfar sameiningar, svo sem varðandi breytta verkaskiptingu milli ríkis og viðkomandi sveitarfélaga, úrbætur á sviði samgöngu- og fjarskiptamála, nýjar leiðir í uppbyggingu stjórnsýslu og grenndarlýðræðis, úrbætur á sviði félags-, fræðslu- og menningarmála, og stuðla að því að nýlegar aðgerðir og áætlanir á sviði atvinnu- og byggðamála skili sér til sveitarfélaganna.

 

Í sameiningarnefndinni eru Flosi Eiríksson og Dagný Jónsdóttir, sem skipuð eru af ráðherra, og Soffía Lárusdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson, sem skipuð eru af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Starfsmaður nefndarinnar er Sigurður Tómas Björgvinsson stjórnsýsluráðgjafi og auk þess starfar Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í ráðuneytinu, með nefndinni.

 

Kynningarfundurinn er opinn öllu áhugafólki um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Dagskrá hans er á þessa leið:

 

     - Ávarp Kristjáns L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

     - Ávarp Halldórs Halldórssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga.

     - Anna Guðrún Edvardsdóttir, formaður stjórnar FV: Staða sameiningarmála á Vestfjörðum.

     - Flosi Eiríksson, form. samstarfsnefndar: Kynning á verkefninu „Nýjar leiðir í eflingu sveitarstjórnarstigsins“.

     - Sigurður Tómas Björgvinsson, starfsmaður sameiningarnefndar: „Lærum af reynslunni - nýjar áherslur í sameiningarmálum“.

 

Fundarstjóri er Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga.

 

Sjá einnig á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis:

Undirbúa nýja leið til sameiningar sveitarfélaga

 

Vefur Fjórðungssambands Vestfirðinga

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31