29. mars 2019 | Sveinn Ragnarsson
Opinn fyrirlestur um Drekaslóð
Hvatastöðin, Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps og Drekaslóð taka höndum saman. Thelma Ásdísardóttir verður með opinn fyrirlestur um Drekaslóð, ofbeldi og afleiðingar þess.
Fyrirlesturinn er í Flugstöðinni á Hólmavík mánudaginn 1. apríl kl. 16:30.
Allir, fagfólk og aðrir áhugasamir eru velkomnir.
Thelma verður einnig með einstaklingsviðtöl á Hólmavík sama dag. Tímapantanir í síma: 6980802 eða á netfangið thelma@drekaslod.is