Tenglar

2. febrúar 2015 |

Opna húsinu frestað um viku

Frá Báta- og hlunnindasýningunni.
Frá Báta- og hlunnindasýningunni.

Fram kom í fréttabréfi sem dreift var í héraðinu í fyrri hluta janúar og birt hér á vefnum, að opið hús yrði á Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Núna hefur verið ákveðið að opna húsið sem hefði þannig átt að vera á morgun, þriðjudag, frestist um eina viku. Þetta er gert vegna útbreiddra veikinda og annarra forfalla.

 

Á opnu húsunum verður hægt að spila og púsla eða bara hittast yfir kaffibolla og köku, en léttar veitingar verða á boðstólum.

 

Aðgangseyrir á þriðjudaginn í næstu viku verður kr. 1.000 fyrir 16 ára og eldri og kr. 500 fyrir þá sem yngri eru, og munu 10% af því sem inn kemur renna til Héraðsbókasafns Reykhólahrepps.

 

Kíkjum á kaffihús og höfum gaman af, og styrkjum menninguna okkar í leiðinni, segir Harpa Eiríksdóttir, forstöðumaður Báta- og hlunnindasýningarinnar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31