30. apríl 2016 |
Opnað í Hótel Bjarkalundi
Þetta árið verður opnað formlega í Hótel Bjarkalundi á morgun, sunnudag 1. maí, og sveitungum boðið að líta inn í tilefni þess. „Þó að við opnum formlega á morgun, þá hefur verið gestkvæmt hjá okkur síðan á sumardaginn fyrsta,“ segir Logi Arnar Guðjónsson hótelstjóri. „Sumarið lítur vel út og bókanir eru um 70-80% fleiri en á sama tíma í fyrra.“
Að sögn Loga verður reksturinn með sama sniði og á síðasta ári. „Og þrátt fyrir sögusagnir um að búið sé að selja hótelið er það enn í höndum sömu eigenda,“ segir hann.