Tenglar

5. janúar 2015 |

Opnir fundir um Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019

Komið er að því að vinna stefnumótunarvinnu fyrir Sóknaráætlun Vestfjarða árin 2015-2019, í samræmi við fyrirhugaðan samning ríkisins og sveitarfélaganna um þetta efni. Ákveðið hefur verið að halda þrjá opna fundi á Vestfjörðum til að safna hugmyndum og forgangsraða þeim. Um er að ræða fundi þar sem öllum er heimilt að mæta og taka þátt í vinnunni. Uppkast að áætluninni verður í framhaldinu birt á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga og þá verður einnig hægt að gera athugasemdir og koma með tillögur. Fundirnir verða sem hér segir:

  • Félagsheimilinu á Patreksfirði mánudaginn 12. janúar.
  • Félagsheimilinu á Hólmavík þriðjudaginn13. janúar.
  • Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði miðvikudaginn 14. janúar.

Allir fundirnir hefjast kl. 15 og standa að hámarki í þrjá tíma. Kaffi á boðstólum í hléi.

 

Í nýrri Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019 á að fjalla um nýsköpun og atvinnuþróun, menningarmál, uppbyggingu mannauðs og lýðfræðilega þróun á svæðinu. Á fundunum verður fjallað um stöðu Vestfjarða í þessum málaflokkum í stuttum kynningum og síðan unnið í hópum við hringborð. Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur umsjón með vinnunni og nýtur aðstoðar Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða. Allir sem áhuga hafa á byggðamálum og framtíð Vestfjarða eru hvattir til að mæta á fundina og taka þátt í vinnunni.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga.

 

Nánari upplýsingar má finna á vef Fjórðungssambandsins, www.vestfirdir.is. Einnig veitir Aðalsteinn Óskarsson framkvæmdastjóri sambandsins nánari upplýsingar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31