18. maí 2020 | Sveinn Ragnarsson
Opnun Grettislaugar tefst um sinn
Heimilt er að opna sundstaði í dag, 18. maí. Grettislaug á Reykhólum verður þó lokuð um sinn vegna framkvæmda sem ráðist var í á vordögum. Útlit er samt fyrir að hægt verði að opna laugina til bráðabirgða innan skamms og verður opnunin auglýst sérstaklega hér á vefnum.
Enn er eftir að ganga frá sturtum og nýjum innréttingum í búningsklefum. Innréttingarnar hafa tafist í framleiðslu vegna ástandsins af völdum Covid-19.
Um langþráðar endurbætur er að ræða og verður gaman að geta boðið uppá betri aðstæður þegar framkvæmdum lýkur.