3. desember 2016 | Umsjón
Orðsending: Notið netfang Reykhólavefjarins
Fólk sem vill koma einu eða öðru á framfæri hér á vef Reykhólahrepps er beðið að nota netfangið vefstjori@reykholar.is eins og verið hefur frá upphafi, frekar en vinnunetföng einstakra starfsmanna á skrifstofu. Það hefur ekkert breyst (sjá neðst til vinstri á síðunni, þar nægir að smella á netfangið til að póstglugginn spretti upp). Fylgst er með pósti í það netfang alla daga, jafnt helga daga sem virka.