29. maí 2017 | Sveinn Ragnarsson
Orkubúið með opna kynningarfundi
Orkubú Vestfjarða verður með opna kynningarfundi á Hólmavík og Patreksfirði í tengslum við ársfund OV, sem haldinn var 16. maí sl.
- Opinn fundur á Hólmavík verður á Café Riis mánudaginn 29. maí kl. 12:00.
- Opinn fundur á Patreksfirði verður á Fosshótel Vestfirðir þriðjudaginn 30. maí kl. 12:00.
Fundirnir eru öllum opnir og verður fundargestum boðið upp á súpu og kaffi á staðnum.
Viðskiptavinir, sveitarstjórnarmenn og annað áhugafólk um orkumál er hvatt til að mæta á fundinn.