Örnefni í Reykhólahreppi
Guðjón Dalkvist, eða Dalli eins og flestir kunnugir kalla hann, skorar á okkur íbúa Reykhólahrepps, að þeir sem kunnugir eru taki þátt í að færa örnefnaskrár inn á loftmyndir. Þá er hægt að ganga að örnefnum á kortum af svæðinu, en af því má hafa margs konar gagn, td. við leiðsögn, fjárleitir og margt fleira. Hægt er að skoða þetta á vef Landmælinga Íslands, lmi.is.
Rétt er að taka fram að fólk getur verið staðkunnugt á ýmsum stöðum í hreppnum þó það búi ekki hér og er liðsinni þess einnig vel þegið.
En hér er semsagt brýningin frá Dalla:
Áskorun til sveitunga minna.
Kæru sveitungar. Snemma á þessu ári auglýstu Landmælingar Íslands (bjarney@lmi.is) eftir staðkunnugum mönnum, til að færa örnefnaskrár inn á loftmyndir. Ég hafði strax samband og voru mér sendar tvær örnefnaskrár fyrir Múla í Gilsfirði og viðeigandi loftmyndir.
Ég hafði mjög gaman af að rifja upp bernskusöðvarnar, því margt var gleymt.
Kalli á Kambi er búinn með Kamb og Gautsdal og Addi í Nesi skráði Króksfjarðarnes en að öðru leiti vantar fyrir allan Reykhólahrepp.
Ég vil því skora á sveitunga mína, landeigendur í hreppnum og aðra kunnuga, að gera gangskör að skráningu allra örnefna hreppsins, áður en fleiri týnast.
Nú eru margar jarðir hreppsins í eyði og aðrar eru setnar af fólki, sem ekki hafa fengið örnefnin frá kunnugum. Þau ár, sem ég bjó í Mýrartungu, lærði ég ekki mörg örnefni, rétt þau næstu og stærstu. Tel víst, að svo sé um marga fleiri.
Í þeim tilvikum þurfa kunnugir menn að hjálpast að. Tökum sem dæmi stóran hluta Þorskafjarðar, þar þyrftu rjúpna- og grenjaskyttur og smalar að hjálpast að.
Ég endurtek áskorun mína á ykkur, kæru vinir, hafið samband við Bjarneyju.
Ég vona þið hafið jafn gaman af þessu og ég hafði.
Dalli
Simon Pétur, rijudagur 29 desember kl: 19:35
Örnefnasjá Landmælinga Íslands
https://ornefnasja.lmi.is/mapview/?application=ORN