Tenglar

2. apríl 2015 |

Óskað eftir umsóknum í nýjan sjóð Vestfirðinga

Sveitarfélögin níu innan Fjórðungssambandsins. Kort: lmi.is.
Sveitarfélögin níu innan Fjórðungssambandsins. Kort: lmi.is.

Stofnaður hefur verið Uppbyggingarsjóður Vestfjarða, sem tekur við hlutverki Menningarráðs Vestfjarða og Vaxtarsamnings Vestfjarða og veitir styrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar og nýsköpunar. Sjóðurinn er rekinn innan vébanda Sóknaráætlunar landshlutans og er í umsjón Fjórðungssambands Vestfirðinga.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aðalsteini Óskarssyni, framkvæmdastjóra Fjórðungssambandsins. Þar segir einnig:

 

Uppbyggingarsjóður er hluti af samningi ríkis og Fjórðungssambands Vestfirðinga um Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019, sem undirritaður var 10. febrúar 2015. Í vor verður í fyrsta skipti úthlutað úr sjóðnum og er umsóknarfrestur til næstu mánaðamóta. Til ráðstöfunar í úthlutun eru um það bil 60 milljónir að þessu sinni, sem er svipuð upphæð og úthlutað var á grundvelli menningar- og vaxtarsamninga á síðasta ári.

 

Veittir verða stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstofnana, verkefnastyrkir til menningarmála og verkefnastyrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna.

 

Nýbreytni er, að hægt er að sækja um stærri styrki til lengri tíma en áður, allt að þremur árum. Skila verður umsóknum á þar til gerðu umsóknareyðublaði, sem er að finna ásamt frekari upplýsingum og úthlutunarreglum á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga – www.vestfirdir.is.

 

Samþykkt hefur verið, að árið 2015 verði litið sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirfarandi skilyrða: 

  1. Verkefni sem efla nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu og stuðla að stofnun nýrra fyrirtækja sem byggja á nýsköpun, einnig vöru- og gæðaþróun í starfandi fyrirtækjum.
  2. Verkefni sem stuðla að nýsköpun, fjölbreytni og aukinni fagmennsku í menningarstarfi.
  3. Verkefni sem fjölga eða styðja við atvinnutækifæri á sviði lista og menningar.
  4. Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu.
  5. Verkefni sem styðja við uppbyggingu og eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu.
  6. Verkefni sem skapa viðskiptatækifæri og verðmæti á sviði skapandi greina.
  7. Verkefni sem skapa störf fyrir háskólamenntaðar konur eða stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir ungt fólk á svæðinu.
  8. Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni sem auka útflutningstekjur eða eru gjaldeyrisskapandi.
  9. Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á sviði líftækni.
  10. Verkefni sem byggja á samstarfi fyrirtækja og rannsóknaraðila, þ.m.t. háskólastofnana.

 

Hægt er að hafa samband og senda umsóknir rafrænt á netfangið uppbygging@vestfirdir.is. Starfsmenn Fjórðungssambands Vestfirðinga veita ráðgjöf við gerð umsókna í Uppbyggingarsjóð og sama gildir um starfsmenn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31