Óskað eftir upplýsingum í ferðablað Vestfjarða 2009
Ferðablaðið Vestfirðir sumarið 2009 er í vinnslu. Þetta er fimmtánda árið í röð sem H-prent á Ísafirði (útgefandi Bæjarins besta og bb.is) gefur út fríblað til kynningar á Vestfjarðakjálkanum og því sem hann hefur að bjóða. Blaðið er allt litprentað í mjög stóru upplagi og látið liggja frammi á vel á þriðja hundrað stöðum um land allt. Hér með er óskað eftir því að vestfirskir ferðaþjónar og aðrir sem vilja koma á framfæri upplýsingum eða auglýsingum til birtingar í blaðinu hafi samband hið allra fyrsta eða í þessari viku. Ekki síst er óskað eftir upplýsingum um viðburði og hátíðir í sumar. Hafið samband í netpósti eða í síma 892 2240.
Ferðablöð fjögurra síðustu ára er hægt að skoða og lesa á vef Bæjarins besta. Smellið á Ferðahornið efst á síðunni og rennið hálfa leið niður. Þar eru blöðin á pdf-formi - smellt á mynd af forsíðu viðkomandi blaðs.