Óskar eftir ónýtum heyrúllum til uppgræðslu
Kæru sveitungar! Fyrir einu og hálfu ári fengum við í Skógum nokkrar heyrúllur sem við ætluðum að nýta til uppgræðslu. Rúllurnar fengum við frá Jónasi Samúelssyni en Gústaf Jökull var svo vinsamlegur að flytja þær fyrir okkur upp á skógræktarsvæðið sunnan gamla bæjarstæðisins. Þurru rúllunum var strax dreift í þykku lagi út yfir þurran mel. Nú tveim sumrum síðar sést umtalsverður árangur af þessu. Gróður af ýmsu tagi er orðinn nokkuð þéttur með brún heyþekjunnar auk þess sem gróður er farinn að stinga sér á víð og dreif upp úr henni. Það vakti athygli í þurrkatíðinni í sumar að allan tímann seig raki út undan heyþekjunni yfir í þurran melinn umhverfis.
Það var fyrst í sumar sem atlaga var gerð með heykvísl að blautu og morknu rúllunum. Ákveðið var að gera tilraun með að stöðva skrið og úrrennsli fram af klettabrún með því sem úr þeim kom. Pakkað var þykku lagi af blautu og morknu heyi ofan á skriðuna, aðgerð sem stöðvaði skriðið. Rýgresisfræi var dreift bæði undir og yfir heyrúlluefnið með það að markmiði að reyna að hengja það saman og gefa því þannig aukinn styrk í von um að það dygði til að framkvæmdin stæðist leysingar í vor. Einnig voru gamlar og þurrar þökur lagðar yfir þar sem brattinn var mestur. Það merkilega var að fræið sem fór undir heyrúlluefnið spíraði strax og ruddist upp í gegn. Fræið sem dreift var yfir spíraði seint.
Þurrrúlludreifingin hefur þegar sannað gildi sitt. Gildi blautrúlluverkefnisins verður ekki metið fyrr en að vori.
Við í Skógum erum tilbúin til að taka við úr sér gengnum heyrúllum, jafnvel þó að þær séu orðnar vel morknar. Rúllurnar verða nýttar til uppgræðslu.
Vegna tækjaskorts í Skógum er þetta háð því að sá sem þarf að losna við rúllurnar komi þeim á staðinn í samráði við Böðvar Jónsson í síma 820 2105.
Lúðvig Lárussson, sunnudagur 29 gst kl: 23:37
Sæll Böðvar!
Frábært framtak hjá þér. Þetta er líka okkar reynsla á Skógarströndinni að engar heyrúllur virðast of gamlar til að nýtast í uppgræðslu örfoka lands. Reynsla okkar er líka að meiri þykkt er betri en minni til að tryggja gróðurfestuna. Séu birkifræbankar í nágenninu líður væntanlega ekki á löngu þar til birkið fer að vaxa þarna líka. Bezt er að sjá árangurinn til að sjá að maður er á réttri leið.
Með beztu kveðju um góðan árangur,
Lúðvíg