Tenglar

2. desember 2015 |

Óttast dýrin flugeldahljóð? - Frí lausn

Um áramótin fyllast margir óöryggi og skelfingu þegar mannfólkið kveikir í skoteldum sér til skemmtunar. Þetta eru gæludýrin og hestarnir. Í flestum tilvikum er hægt að koma í veg fyrir þessa hræðslu. Það er gert með því að venja dýrin við hljóðin svo að þau átti sig á að ekkert hættulegt sé á ferð.

 

Vefurinn Flugeldahljóð gerð „örugg“ (www.flugeldahljod.com) býður hverjum sem er ókeypis fjórar viðeigandi hljóðskrár í MP3-formi frá áramótaflugeldum og flugeldasýningu ásamt vönduðum leiðbeiningum. Notendur geta einnig búið til eigin CD-hljómdisk ef þörf er á, eða keypt slíkan. Lausnin er byggð á þekktum aðferðum sem nefnast desensitization eða habituation. Hér fá eigendur frían aðgang að hljóðum og leiðbeiningum en þurfa sjálfir að sjá fyrir viðeigandi hljómtækjum og tíma til að gera þetta.

 

Vörulínurnar eru sex fyrir mismunandi dýrategundir: Hunda, ketti, hesta, fugla, smádýr og blandaðar tegundir. Dýr eru lifandi verur og það tekur misjafnlega langan tíma fyrir þau að klára ferlið. Gæludýra- og hestaeigendum á Íslandi er boðið að skrá sig inn á vefnum og nýta lausnina. Best er að gera það sem allra fyrst.

 

Vefurinn Flugeldahljóð er byggður á nýsköpunarstarfi, þar sem verið er að þróa nýjungar á þessu sviði fyrir alþjóðamarkað til að gera þessar aðferðir auðveldari og öruggari. Með því er vonast til að þær verði útbreiddari. Vefnum hefur þegar verið vel tekið af fagfólki á sviði umhirðu gæludýra. Á þeirri stundu sem þetta birtist hafa líklega milli 200-300 gæludýra- og hestaeigendur skráð sig inn á vefinn.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sverri Sv. Sigurðarsyni, sem stendur að þessu framtaki.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31