20. ágúst 2014 | vefstjori@reykholar.is
Óvætturin Assa í Sævangi
Núna á föstudagskvöld verður kynning á haferninum í Sævangi við Steingrímsfjörð (Sauðfjársetri á Ströndum). Bergsveinn Reynisson á Gróustöðum við Gilsfjörð og Guðlaug Guðmunda Ingibjörg dóttir hans segja frá óvættinni Össu og ber kynningin yfirskriftina Mesta óvættur íslensks dýraríkis (að frátöldum jólakettinum): Loddan! Jafnframt kynna þau Arnarsetur Íslands í Króksfjarðarnesi.
Létt kaffihlaðborð kr. 1.200. Allt áhugasamt fólk er hvatt til að koma á þessa skemmtilega kynningu í Sævangi sem hefst kl. 20.
Sjá einnig:
► Hann fylgir þér með augunum hvert fótmál