Tenglar

4. desember 2015 |

Óvissu eytt: Kemur við í Flatey í vetur eftir þörfum

Breiðafjarðarferjan Baldur.
Breiðafjarðarferjan Baldur.

Breiðafjarðarferjan Baldur kemur við í Flatey í vetur ef hægt er og ástæða er til. Sjólag, veður og birta geta haft áhrif á ákvörðun um hvort hægt er að koma við í Flatey. Ekki verður rukkað aukalega fyrir þessar viðkomur. Skipið mun eftir sem áður koma við í Flatey með póst á ákveðnum dögum en aðra daga kemur Baldur við í Flatey ef farþegar eru.

 

Þetta kemur fram á vef Framfarafélags Flateyjar.

 

Fyrir nokkru átti stjórn félagsins fund með framkvæmastjóra Sæferða, sem eiga og reka Baldur. Þar var m.a. rætt um túlkun á samningi Sæferða við Vegagerðina vegna vetraráætlunar. Niðurstaðan er sú sem að ofan greinir.

 

Sæferðir fara fram á að farþegar tilkynni til skrifstofu með dags fyrirvara ef þeir gera ráð fyrir að sigla út í Flatey. Mikilvægt er að farþegar tilkynni (áhöfn og/eða skrifstofu) hvenær þeir ætli að fara aftur í land svo að áhöfn viti hvort og hvenær koma þurfi við í Flatey.

 

Stjórn Framfarafélagsins fagnar túlkun Sæferða á samningnum við Vegagerðina, sem mun leiða til þess að íbúar, húseigendur og aðrir gestir eiga auðveldara með að skipuleggja ferðalög og heimsóknir í eyjuna okkar fögru á veturna.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31