4. maí 2009 |
Páll spáir góðri grassprettu í sumar
Grasið verður enn á ný grænt og gróskumikið í sveitum landsins þetta sumarið, ef marka má sprettuspá Páls Bergþórssonar veðurfræðings. Spáin byggist á meðalhita 7 mánaða í Stykkishólmi, en fylgni þessa vetrarhita við heyfeng sumarsins hefur gjarnan verið mjög mikil. Meðalhitinn nú var 1,3°C en var samt heldur meiri síðustu fjögur árin eða 1,5°. Þetta bendir til að lítið frost sé í jörðu. Á hlýindaskeiðinu 1931-1960 var vetrarhitinn 1,1°C að meðaltali en lægstur mínus 3° frostaveturinn 1918. Til að tryggja svipaða sprettu og undanfarið mætti auka ögn áburðargjöf, byrja sláttinn fyrr eða forðast að beita á túnin á vorin.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Sjá einnig:
14.06.2008 Heyskapur með allra fyrsta móti og spretta geysimikil