9. febrúar 2016 |
Pítsadagur - fimmtán áleggstegundir
Pítsadagur Nemendafélags Reykhólaskóla er á fimmtudag og hefst klukkan 18. Hægt verður að panta pítsu bæði til að taka með eða til að borða á staðnum. Tekið er við pöntunum frá klukkan 9 á morgun, miðvikudag, í síma 698 2559. Líka er hægt að panta í netfanginu johanna@reykholaskoli.is. Ef pantað er í netpósti þarf að taka fram hvenær pítsan verður sótt, þá fáið þið til baka því til staðfestingar tölvupóstinn Móttekið.
Áleggstegundir í boði:
- pepperoni
- skinka
- beikon
- hakk
- sveppir
- rauðlaukur
- ananas
- paprika
- tómatar
- jalapeno
- hvítlaukur
- nachos
- maískorn
- piparostur
- rjómaostur
Verðið er 1900 krónur fyrir 12 tommu pítsu með tveimur áleggstegundum.
Aukaálegg kostar 150 krónur.
Hægt er að panta 12 tommu hvítlauksbrauð eða 12 tommu margarítu á 1700 krónur.