Tenglar

15. nóvember 2017 | Sveinn Ragnarsson

Pítsadagur Nemendafélagsins

Hefðbundinn pítsudagur Nemendafélags Reykhólaskóla (sem er ein af fjáröflunarleiðum þess) verður í borðsal skólans kl. 17:30-21 á mánudag í komandi viku (20. nóvember).

 

Hægt verður að panta pítsu bæði til að taka með sér eða borða á staðnum.

 

Tekið er við pöntunum frá kl. 11 á föstudegi til kl. 17 á mánudegi í síma 698 2559/4347860. Líka er hægt að panta í netfanginu johanna@reykholaskoli.is frá og með mánudegi.

 

Ef pantað er í netpósti þarf að taka fram hver pantar, hvenær pítsan verður sótt og hvort hún verður etin á staðnum eða tekin með heim. Þá verður send til baka staðfesting á móttöku.

 

Verðið er 1.900 krónur fyrir 12 tommu pítsu með tveimur áleggstegundum. Aukaálegg kostar 150 krónur. Hægt er að panta 12 tommu hvítlauksbrauð eða 12 tommu margarítu á 1.700 krónur.

 

Áleggstegundir í boði eru beikon, hakk, skinka, pepperóní, sveppir, laukur, tómatar, paprika, ananas, maís, rjómaostur, ólífur ofl.

 


Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30