27. mars 2017 | Sveinn Ragnarsson
Pitsadagur þriðjudaginn 28. mars
Pitsa-veitingahús verður opið í matsal Reykhólaskóla þriðjudaginn 28. mars kl 18:00 – 21:00.
Hægt að snæða pitsuna á staðnum, eða taka hana með sér heim.
Tekið verður við pöntunum frá kl 15:00
Pitsurnar eru 12” stórar og kosta 1.900 kr. (innifalið eru tvær áleggstegundir). Aukaálegg kostar 200 kr.
Ýmis konar álegg er í boði eins og: pepperoni, skinka, beikon, sveppir, paprika, ananas, laukur og rjómaostur.
Margaritapitsa (sósa + ostur) kostar 1.700 kr.
Einnig verður gos til sölu.
Magnafsláttur er veittur ef keyptar eru:
2 pitsur = 3.600 kr.
3 pitsur = 5.400 kr
Vinsamlegast pantið tímanlega í síma 6923885
Nemendur 8. – 10. bekk Reykhólaskóla