Tenglar

21. nóvember 2016 | Umsjón

Pítsudagur Nemendafélags Reykhólaskóla, taka tvö

Pítsudeginum sem vera átti í síðustu viku var frestað vegna mjög slæmrar veðurspár. Í staðinn verður hann núna á miðvikudagskvöld, 23. nóvember, og veðurspáin ólíkt betri. Pítsurnar verða reiddar fram í borðsal Reykhólaskóla kl. 18-21 og verður bæði hægt að borða þær á staðnum eða taka með sér heim.

 

Tekið er við pöntunum í netfanginu johanna@reykholaskoli.is og síma 698 2559. Ef pantað er í tölvupósti þarf að taka fram hver pantar, hvenær pítsan verður sótt og hvort hún verður etin á staðnum eða tekin með heim. Send verður til baka staðfesting á móttöku.

 

Verðið er 1.900 krónur fyrir 12 tommu pítsu með tveimur áleggstegundum. Aukaálegg kostar 150 krónur. Hægt er að panta 12 tommu hvítlauksbrauð eða 12 tommu margarítu á 1.700 krónur.

 

Áleggstegundir í boði eru beikon, hakk, skinka, pepperóní, sveppir, laukur, tómatar, paprika, ananas, maís, rjómaostur ofl.

 

Pítsudagur Nemendafélags Reykhólaskóla er ein af hefðbundnum fjáröflunarleiðum þess.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31