Tenglar

17. febrúar 2011 |

Pítsudagur í Reykhólaskóla

Pítsuveitingahús verður opið í matsalnum í Reykhólaskóla í kvöld, fimmtudag, frá kl. 18 til 21. Hægt verður að snæða pítsurnar á staðnum eða taka þær með sér heim. Tekið er við pöntunum frá kl. 12 á hádegi. Fólk er beðið um að panta tímanlega í síma 894 9123. Pítsurnar eru tólf tommur í þvermál og kosta 1.700 krónur með tveimur áleggstegundum en aukaálegg kostar 200 krónur. Margaríta-pítsa (sósa og ostur) kostar 1.500 krónur. Þetta framtak er í höndum nemenda í 8.-10. bekk, sem eru að safna sér fyrir Danmerkurferð í apríl.

 

Álegg af ýmsu tagi er í boði, svo sem hakk, pepperóní, skinka, rjómaostur, sveppir, paprika, ananas, laukur og beikon. Afsláttur er veittur þegar keyptar eru fleiri en ein pítsa - tvær á 3.000 krónur og þrjár á 4.000 krónur.

 

Athugasemdir

Hanna Lára, fimmtudagur 17 febrar kl: 10:19

Flott hjá ykkur. :)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31