Tenglar

15. janúar 2009 |

Póstmálin: Ráðamenn taka við sér

Umfjöllun hér á vefnum síðdegis í gær um póstmálin í Reykhólahreppi hefur vakið talsverða athygli og viðbrögð og mun einhverjum hafa þótt hún harkaleg. Bréf sveitarstjóra sem þar er birt er harðort, en þess ber að gæta, að hann hefur skrifað mörg kurteisleg bréf vegna þessara mála án þess að þeim hafi verið svo mikið sem svarað, m.a. bréf til ráðherra samgöngu- og póstmála fyrir tæpum fimm mánuðum. Reynslan virðist sýna, að kurteisi komi yfirleitt ekki miklu til leiðar í málum sem þessum.

 

Í gærkvöldi og í morgun hafa sveitarstjóra borist svör frá tveimur þingmönnum kjördæmisins til viðbótar þeim tveimur sem fram koma í fréttinni hér á vef Reykhólahrepps í gær. Auk þess barst sveitarstjóra í morgun skeyti frá Árna Þór Sigurðssyni alþingismanni, sem á sæti í samgöngunefnd Alþingis, en póstmál heyra undir hana.


 

Sturla Böðvarsson, alþm. Norðvesturkjördæmis og forseti Alþingis skrifar:

 

Ég mun kynna mér þetta mál og taka upp á fundi okkar þingmanna þegar við komum saman til þingfunda 20. janúar nk. Fróðlegt væri að fá svör ráðuneytis og Póst- og fjarskiptastofnunar við þeim erindum sveitarfélagsins sem fylgja með tölvupóstinum svo þingmenn geti kynnt sér sem best þau gögn sem liggja til grundvallar ákvörðun um lokun póstafgreiðslunnar.

 

 

Einar K. Guðfinnsson, alþm. Norðvesturkjördæmis og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skrifar:

Ég mun kynna mér þetta mál, ræða við Samgönguráðuneytið og Póst- og fjarskiptaráðuneytið og vil svo vera í sambandi við þig og ykkur fltr. sveitarstjórnar Reykhólahrepps um framhaldið.


Árni Þór Sigurðsson alþm. skrifar:

Ég vildi upplýsa þig um að ég hef, sem fulltrúi VG í samgöngunefnd Alþingis, óskað eftir fundi í nefndinni til að ræða málefni Íslandspósts og póstþjónustuna almennt. Hef ég lagt til að m.a. verði boðið fulltrúum sveitarfélaga sem hafa orðið fyrir umtalsverðri skerðingu á póstþjónustu svo þeir geti gert nefndinni grein fyrir sjónarmiðum sínum. Ég vonast til að af nefndarfundi geti orðið í næstu viku.

 

Athugasemdir

Birna Hilmarsdóttir, fimmtudagur 15 janar kl: 22:30

Athyglisverð eru ummæli sveitarstjóra Reykhólahrepps um þau rök Íslandspósts að mikil minnkun hafi orðið á innskráningu pósts í Króksfjarðarnes, en þeir hafi ekki látið fylgja með í sínum rökum að þeir skipuðu landpóstinum að keyra með allan póst framhjá Króksfjarðarnesi og í Búðardal. Fróðlegt væri að fá rök sveitarstjóra Reykhólahrepps fyrir því, hvaða tilgangi það ætti að þjóna og hvaða skynsemi er í því að ætla landpósti að koma við í póstafgreiðslu í Króksfjarðarnesi til að skrá þar bréf, ef engin þörf er á því. Ég verð að taka ofan fyrir starfsmönnum Íslandspósts fyrir að gæta hagræðingar í rekstri fyrirtækisins og vera ekki að halda uppi þjónustu, sem lítil eða engin þörf er fyrir. Auðvitað eiga íbúar Reykhólahrepps að fá bréf og pakka eins og aðrir landsmenn, en það getur ekki verið nmarkmið í sjálfu sér að halda opinni póstafgreiðslu, ef það hefur lítinn sem engan tilgang varðandi það að taka við og koma sendingum til skila. Slíka óráðssíu borgum við viðskiptavinir Íslandspósts og við hljótum að gera þá kröfu til starfsmanna fyrirtækisins að þeir hafi reksturinn eins hagkvæman og hugsast getur. Ef einhverjir þingmenn, sveitarstjórn Reykhólahrepps eða aðrir vilja halda opnum 1, 5 eða 10 póstafgreiðslum í Reykhólahreppi, sem engin þörf er fyrir, þá eiga þeir auðvitað að útvega peninga í það, en ekki ætla almennum viðskiptavinum að gera það með of háum burðargjöldum.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31