Póstmálin í Reykhólahreppi komin á borð ráðherra
Reykhólahreppur ritaði í gær Kristjáni L. Möller ráðherra póst- og fjarskiptamála bréf þar sem farið er fram á að lokun pósthússins í Króksfjarðarnesi verði frestað um a.m.k. tvo mánuði. Búið var að ákveða að því yrði lokað núna um mánaðamótin. Jafnframt er þess farið á leit, að ráðherrann fresti þeirri ákvörðun Íslandspósts að fækka póstdreifingardögum í hluta hreppsins úr fimm í viku í þrjá í viku. Í bréfinu segir enn fremur, að Reykhólahreppur muni fara með þessi mál fyrir dómstóla ef þess gerist þörf. Þess vegna sé farið þess á leit, að ráðherrann fresti umræddum ákvörðunum á meðan lögfræðingar fari yfir málin. Afrit af bréfinu til ráðherrans var sent þingmönnum kjördæmisins.
Sjá einnig:
21.08.2008 Póstafgreiðslunni í Nesi lokað um mánaðamótin
19.08.2008 Ákvörðun um fækkun póstdreifingardaga staðfest