Pósturinn: Skerðingin að ganga í gildi
Margumræddar breytingar á póstdreifingu í Reykhólahreppi ganga í gildi núna um mánaðamótin. Hætt verður að dreifa póstinum alla virka daga og verður honum framvegis dreift annan hvern virkan dag. Síðasti dreifingardagur fyrir breytinguna er á morgun, fimmtudag, en sá fyrsti eftir hana er á mánudag, 4. apríl.
Reyndar er komið á þriðja ár síðan hætt var að dreifa pósti lengra en í Bjarkalund nema þrjá daga í viku og hefur því Gufudalssveitin auk Kinnarstaða og Hofsstaða í Reykhólasveit búið við þá tilhögun síðan. Pósti verður áfram komið til Flateyjar með sama hætti og verið hefur, eða frá Stykkishólmi tvisvar í viku.
Hér má sjá töflu um dreifingardaga (pdf). Pósturinn áskilur sér þó rétt til breytinga án fyrirvara.
22.03.2016 Pósturinn: Höfum enga aðra kosti í stöðunni
01.03.2016 Skerðingin á póstþjónustunni frestast um mánuð
16.02.2016 Ráðherra ritað bréf vegna skerðingar á póstþjónustu
01.02.2016 Undanþága frá lögum veitt í reglugerð
27.01.2016 Aðför að dreifðum byggðum
21.01.2016 Guðbirni pósti sagt upp
08.01.2016 Pósturinn: Dreifingardögum fækkað um helming