Tenglar

30. mars 2016 |

Pósturinn: Skerðingin að ganga í gildi

Margumræddar breytingar á póstdreifingu í Reykhólahreppi ganga í gildi núna um mánaðamótin. Hætt verður að dreifa póstinum alla virka daga og verður honum framvegis dreift annan hvern virkan dag. Síðasti dreifingardagur fyrir breytinguna er á morgun, fimmtudag, en sá fyrsti eftir hana er á mánudag, 4. apríl.

 

Reyndar er komið á þriðja ár síðan hætt var að dreifa pósti lengra en í Bjarkalund nema þrjá daga í viku og hefur því Gufudalssveitin auk Kinnarstaða og Hofsstaða í Reykhólasveit búið við þá tilhögun síðan. Pósti verður áfram komið til Flateyjar með sama hætti og verið hefur, eða frá Stykkishólmi tvisvar í viku.

 

Hér má sjá töflu um dreifingardaga (pdf). Pósturinn áskilur sér þó rétt til breytinga án fyrirvara.

 

22.03.2016  Pósturinn: Höfum enga aðra kosti í stöðunni

 

01.03.2016  Skerðingin á póstþjónustunni frestast um mánuð


16.02.2016  Ráðherra ritað bréf vegna skerðingar á póstþjónustu

 

01.02.2016  Undanþága frá lögum veitt í reglugerð

 

27.01.2016  Aðför að dreifðum byggðum

 

21.01.2016  Guðbirni pósti sagt upp

 

08.01.2016  Pósturinn: Dreifingardögum fækkað um helming

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Oktber 2024 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31