16. júní 2016 |
„Prjónað á almannafæri“ í Króksfjarðarnesi
Handverksfélagið Assa býður öllum sem vilja að koma í Króksfjarðarnes og taka þátt í alþjóðlega prjónadeginum (World Wide Knit in Public Day) kl. 14-18 núna á laugardag, 18. júní. Fólk þarf ekki endilega koma með prjónana, alveg nóg að koma og hafa gaman saman.
Alþjóðlegi prjónadagurinn er víðtækasti prjónaviðburður í heimi og hefur verið haldinn allt frá 2005. Formlegt heiti hans gæti verið svona á íslensku: Dagur prjónaskapar á almannafæri um víða veröld.
World Wide Knit in Public Day – vefur á heimsvísu
Handverksfélagið Assa á WWKiPD - prjónum saman