Tenglar

12. mars 2012 |

Pungapróf á Hólmavík og Reykhólum - skráning strax

Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður svokallað smáskipanám (sem áður var gjarnan nefnt pungapróf) á Hólmavík og Reykhólum. Þeir sem ljúka slíku námi öðlast rétt til að fá skírteini sem skipstjóri / stýrimaður á skipum styttri en 12 m að skráningarlengd í strandsiglingum eftir 12 mánaða siglingatíma (smáskipaskírteini).

 

Guðbjörn Páll Sölvason á Ísafirði annast kennsluna á námskeiðinu. Fyrri hlutinn verður á Hólmavík um næstu helgi, 17.-19. mars, en seinni hlutinn á Reykhólum helgina eftir páska. Þannig ætti að vera gerlegt fyrir þátttakendur á Ströndum, í Reykhólahreppi og Dölum að sækja námskeiðið. Á milli helgarlotanna verður fjarnám gegnum netið og mun verkefnastjóri á Hólmavík aðstoða við tæknileg atriði sem að því snúa.

 

Námið kostar 115 þúsund krónur og eru eftirfarandi námsgögn innifalin: Sjómannabók (eftir Pál Ægi Pétursson), Siglingareglur, Siglingalög og þrjú sjókort. Nemendur þurfa að eiga reglustiku og gráðuhorn, en hægt er að láta panta það fyrir sig við skráningu og greiða með námskeiðsgjaldinu.

 

Fræðslumiðstöðin er ávallt sveigjanleg í samningum um greiðslur námskeiðsgjalda, en semja þarf um skiptingu greiðslna tímanlega.

 

Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem allra fyrst, en ennþá vantar örfáa þátttakendur til að af námskeiðinu geti orðið. Nánari upplýsingar fást hjá Kristínu Sigurrós Einarsdóttur verkefnastjóra á Hólmavík í síma 867 3164 eða á vef Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31