25. apríl 2015 |
Pylsugerðarnámskeiðið á Reykhólum
Þrettán manns sóttu pylsugerðarnámskeið sem haldið var í Reykhólaskóla í dag og voru nemendurnir bæði úr Strandasýslu og Dalasýslu auk heimafólks í Reykhólahreppi. Námskeiðið var á vegum Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands og komu kennarar að sunnan, þeir Jóhannes Geir Númason og Sigurður Jóhannesson.
Myndirnar frá námskeiðinu sem hér fylgja tók Herdís Erna Matthíasdóttir á Reykhólum.