4. maí 2011 |
Ráðgjafar Atvest verða til viðtals á Reykhólum
Framkvæmdastjóri og starfsmenn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða (Atvest) verða á Hólmavík og Reykhólum á morgun, fimmtudaginn 5. maí. Þar sem starfsmaður félagsins á Hólmavík hefur verið í barneignarleyfi undanfarna mánuði hefur því miður ekki verið nægjanlegt aðgengi að ráðgjöf frá félaginu þann tíma, segir í tilkynningu. Atvest hvetur fyrirtæki og einstaklinga sem vantar handleiðslu og ráðgjöf að hafa samband við Ásgerði Þorleifsdóttur í síma 450 3053 eða í netfanginu asgerdur@atvest.is.
Annað hvort verður þá bókaður tími á skrifstofunni eða kíkt verður í heimsókn til viðkomandi.
Annað hvort verður þá bókaður tími á skrifstofunni eða kíkt verður í heimsókn til viðkomandi.