Ráðgjöf vegna lesblindu hjá fullorðnum
Jón Einar Haraldsson, betur þekktur sem Lambi, verður á Reykhólum á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða núna á fimmtudag. Hann er sérfræðingur í lesblinduleiðréttingu og notar kerfi sem kennt er við Ron Davis (sjá nánar á vefnum les.is). Á Reykhólum heimsækir Lambi vinnustaði og hittir fólk á förnum vegi.
Ef einhver kannast við eftirfarandi lýsingu á sá hinn sami erindi við Lamba: Áttu erfitt með lestur, bókstafi og tölur og að halda athygli? Þá er líklegt að þú hugsir í myndum. Þrívíð myndhugsun er náðargáfa, en hún getur valdið sértækum námserfiðleikum og getur dregið úr árangri í námi og starfi. Með aðferðum Ron Davis má virkja þessa náðargáfu.
Lambi mun segja frá þessum aðferðum en hann getur einnig veitt einstaklingsþjónustu við að hjálpa fólki áleiðis í þjálfun. Hér er átt við fullorðið fólk en ekki grunnskólanemendur.
Fólk sem vill kynna sér málið frekar eða hitta Lamba getur haft samband við hann í síma 867 1875. Forstöðumaður Fræðslumiðstöðvarinnar veitir einnig nánari upplýsingar í síma 456 5033 eða í netfanginu smari@frmst.is.