Tenglar

20. nóvember 2008 |

Ráðherra boðar markaðssókn í ferðaþjónustu

Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson.

Össur Skarphéðinsson iðnaðar- og ferðamálaráðherra boðaði mikla markaðssókn ferðaþjónustunnar á Ferðamálaþingi í dag. Hann sagði nauðsynlegt að byggja upp ferðamannastaðina í landinu og leggur til, að til þess verði settur fastur tekjustofn á fjárlögum. Ráðherrann greindi frá því að ríkisstjórnin hefði aukið framlög til markaðssetningar ferðaþjónustunnar erlendis. Hann lagði áherslu á að það væri fjárfesting, ekki kostnaður. Sömuleiðis væri brýn þörf á að auka fjárfestingu innanlands.

 

Össur segir að setja verði fastan tekjustofn í ferðaþjónustuna á fjárlögum. Hann ætli sér að leggja fram frumvarp þess efnis núna í vetur. Til greina komi að setja sérstakt brottfarargjald á alla farþega sem fari frá landinu eða leggja 0,05% veltuskatt á fyrirtæki. Sú prósenta væri ekki mikil þegar litið sé til þess að ríkisstjórnin sé nýbúin að fella niður 3% af tekjuskatti fyrirtækja. Þetta myndi búa til 400-500 milljónir á ári til að byggja upp ferðamannasvæðin og auglýsa landið erlendis.

 

ruv.is

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31