Tenglar

14. nóvember 2012 |

Ráðstefna um kjaramál eldri borgara

Landssamband eldri borgara (LEB) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) boða til ráðstefnu kl. 13-16 á morgun, fimmtudag, á Icelandair Hótel Natura (áður Hótel Loftleiðir) í Reykjavík. Formaður LEB er Jóna Valgerður Kristjánsdóttir í Mýrartungu II í Reykhólasveit. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Dagskráin er þannig:

 

  1. Setning: Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður LEB.
  2. Hagur eldri borgara á Íslandi: Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands og formaður stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins.
  3. Hækkandi lífaldur - nauðsynleg viðbrögð: Árni Gunnarsson, fv. alþingismaður og formaður starfshóps um endurskoðun almannatrygginga.
  4. Lífeyriskerfin verða að vinna saman að bættum kjörum aldraðra: Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
  5. Launakönnun BSRB - Tekjutengingar í almannatryggingakerfinu: Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB.
  6. Lífeyrissjóðir - réttindi - eign: Þórey S. Þórðardóttir hrl., framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða.
  7. Baráttan um brauðið - enn er þörf:  Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Kjaranefndar LEB.
  8. Umræður - fyrirspurnir - lokaorð.

 

Ráðstefnustjóri: Halldór Sig. Guðmundsson, félagsráðgjafi og lektor við Háskóla Íslands.

 

Heimasíða Landssambands eldri borgara

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31