25. júlí 2016 |
Rafmagn tekið af í Reykhólasveit og Gufudalssveit
Straumlaust verður í nótt, aðfaranótt þriðjudags, í Reykhólasveit frá Mýrartungu að Reykhólum og í Gufudalssveit, vegna vinnu við spennistöðvar. Rafmagnsleysið verður frá miðnætti í sirka tvo tíma.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkubúi Vestfjarða.