8. ágúst 2014 | vefstjori@reykholar.is
Rafmagnsleysi á Reykhólalínu og Kollafjarðarlínu
Reykhólalína verður tekin úr rekstri kl. 10 í dag vegna bilunar við Barma. Búast má við straumleysi í allt að klukkustund. Kollafjarðarlína fer einnig út á sama tíma. Notendur allt frá Mýrartungu og inn í Kollafjörð verða án rafmagns á meðan viðgerð stendur yfir. Einhver truflun verður á rafmagni allt frá Geiradal. Varaafl verður keyrt á Reykhólum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkubúi Vestfjarða.