12. júlí 2013 | vefstjori@reykholar.is
Rafmagnsritvél óskast á bókasafnið
Ritvélin á Héraðsbókasafni Reykhólahrepps er búin að leggja upp laupana eftir langa og dygga þjónustu. Tölvur og tölvuprentarar eru líklega búin að leysa ritvélarnar góðu af hólmi á flestum heimilum. Ekki er ósennilegt að ýmsir séu með ágæta ritvél geymda á góðum stað og hafi ekki viljað henda henni alveg strax.
Á bókasafninu þarf að nota ritvél við skráningu og þess vegna auglýsir Harpa bókavörður eftir góðri rafmagnsritvél. Hafið endilega samband við hana í síma 894 1011 ef þið lumið á slíku tæki og viljið láta það af hendi.
Gísli Sigurðsson, fstudagur 12 jl kl: 22:27
http://eyjan.pressan.is/frettir/2013/07/12/ovaent-afleiding-njosnahneykslisins-russar-vilja-kaupa-ritvelar/