2. september 2014 | vefstjori@reykholar.is
Rafmagnsskerðingar í Reykhólahreppi
Orkubú Vestfjarða mun þurfa að skammta rafmagn í Reykhólahreppi miðvikudaginn 3. september frá kl. 9 til kl. 18, þar sem tengivirkið í Geiradal verður gert straumlaust. Jafnframt eru notendur í Reykhólahreppi beðnir um að fara sparlega með rafmagn á þessum tíma. Dísilvélin á Reykhólum verður keyrð eins og hægt verður á meðan á þessu stendur.