28. september 2009 |
Raunfærnimat á Reykhólum
Fundur til kynningar á raunfærnimati verður haldinn í Reykhólaskóla kl. 16 á morgun, þriðjudag. Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi kynnir matið, en hér er um að ræða mat á starfsreynslu til styttingar á námi í átt til sveinsprófs. Raunfærnimat hentar þeim sem hófu einhvern tímann iðnnám eða hafa starfað lengi í iðngrein og vilja ljúka námi á sem fljótlegastan hátt. Fyrir fundinn eða frá kl. 13 býður Björn einstaklingsviðtöl og má panta tíma í síma 899 0883.
Þá mun Kristín Sigurrós Einarsdóttir verkefnastjóri kynna starfsemi vetrarins hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, en miðstöðin fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir. Nýútkominn bæklingur Fræðslumiðstöðvarinnar liggur frammi á fundinum og heitt verður á könnunni.