10. apríl 2014 | vefstjori@reykholar.is
Rausnarlegt framlag í söfnun vegna hjartahnoðtækis
Sjúkraflutningamenn í Búðardal gangast um þessar mundir fyrir söfnun til kaupa á sjálfvirku hjartahnoðtæki, sem kostar um tvær og hálfa milljón króna. Lionsklúbbur Búðardals heldur utan um fjárframlög til söfnunarinnar. Heldur betur bættist í sjóðinn í gær, þegar konur í Kvenfélaginu Fjólu í Miðdölum lögðu fram eina og hálfa milljón króna.
Nánar segir frá þessu hér á vefnum Búðardalur.is.