10. desember 2011 |
Regína Ósk með jólatónleika á Hólmavík
Regína Ósk heldur núna á þriðjudaginn jóla- og fjölskyldutónleika í Hólmavíkurkirkju og hefjast þeir kl. 20. Hægt er að nálgast miða á www.midi.is og við innganginn, en miðaverð er kr. 2.900. Frítt föruneyti tekur þátt í tónleikunum, Haraldur Vignir spilar á píanó og hljómborð og Matthías Stefánsson á gítar og fiðlu, auk þess sem Svenni Þór, maður Regínu, og Aníta dóttir hennar koma fram. Einnig syngur barna- og unglingakór Hólmavíkurkirkju með Regínu undir stjórn Sigríðar Óladóttur.
Þetta kemur fram á fréttavefnum Strandir.is.
Regína Ósk á Wikipedíu (íslenska)