Tenglar

13. nóvember 2009 |

Rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur

Háskólinn á Bifröst býður upp á rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur sem hafa áhuga á að bæta rekstrarþekkingu sína. Máttur kvenna er 11 vikna námskeið sem hefst með vinnuhelgi á Bifröst. Kennsla fer svo fram í fjarnámi og geta þátttakendur hlustað á fyrirlestra á netinu og unnið verkefni hvenær sem þeim hentar. Náminu lýkur með vinnuhelgi og formlegri útskrift.

 

Engar sérstakar forkröfur eru gerðar varðandi fyrra nám.

Þátttökugjald er 95.000 kr. Innifalið í verðinu eru öll námsgögn og 2 vinnuhelgar með gistingu og fæði.

 

Næsta námskeið hefst með vinnuhelgi á Bifröst 26.-27. febrúar 2010.

 

Námsgreinar í Mætti kvenna:

     - Bókhald I

     - Upplýsingatækni

     - Markaðs- og sölumál

     - Fjármál

     - Áætlanagerð

 

Markmiðin með Mætti kvenna eru að:

     - Efla tengslanet kvenna

     - Auka hæfni kvenna í atvinnurekstri

     - Auka arðsemi fyrirtækja

     - Efla atvinnulíf á landsbyggðinni á þeim sviðum sem líklegust eru til að stuðla að vexti og uppbyggingu

     - Skapa fleiri störf á landsbyggðinni

     - Snúa vörn í sókn

 

Nánari upplýsingar um Mátt kvenna veitir verkefnastjóri símenntunar á Bifröst, Geirlaug Jóhannsdóttir, í síma 433 3015 eða með tölvupósti: geirlaug@bifrost.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31