10. nóvember 2012 |
„Rekstur skóla og menntun nemenda er sitt hvað“
„Í orði eru flestir sammála um að góð menntun ætti að vera ein grunnstoða allra samfélaga. Á undanförnum árum hafa aðgerðir menntamálayfirvalda þó frekar stuðlað að því að grafa undan skólastarfi í landinu. Það má vera að einhverjum finnist þetta stór orð en þó er líklegra að þeir séu fleiri sem kannast við það alvarlega ástand sem við blasir í menntamálum.“
Þetta segir Rakel Sigurgeirsdóttir, varaformaður framkvæmdaráðs Samstöðu og fyrrv. framhaldsskólakennari, í upphafi greinar um menntamál á Íslandi sem hún sendi vefnum til birtingar. Síðar í greininni segir hún m.a.:
- Sú ákvörðun að færa rekstur grunnskóla yfir til sveitarfélaga er skýrt dæmi um skortinn á ígrundaðri stefnu í þessum málaflokki.
- Á meðan tekjustofnar ríkis og sveitarfélaga byggja á sömu forsendum og áður þá er sveitarfélögunum gert að sinna þeirri ríkisskyldu að halda uppi skyldunámi grunnskólans. Afleiðingarnar þekkja þeir best sem búa í dreifðari byggðum landsins.
Grein Rakelar er að finna í heild með því að smella hér og undir Sjónarmið í valmyndinni vinstra megin undir fyrirsögninni Rekstur skóla og menntun nemenda er sitt hvað.